201478
Á lager

Durbanville Hills Collectors Reserve Pinotage

Korktappi
  Korktappi  
Recognition

Vörulýsing
Suður Afríka flokkast yfirleitt í daglegu tali til Nýja heimsins þegar víngerð er annars vegar. Það má hinsvegar færa sterk rök fyrir því að að eðli víngerðar í Suður Afríku eigi meira sameiginlegt með gamla heiminum í Evrópu en ,,nýju´´ svæðunum í Síle, Ástralíu og víðar. Það er vegna þeirrar órofnu vínræktarhefðar sem þar hefur verið í nær fjórar aldir aftur í tímann ásamt því hvernig vínframleiðslan hefur þróast á höfðasvæðinu á suðurodda Afríku. Eitt allra besta dæmið um þetta er að finna skammt norð-vestan við Höfðaborg í hlíðum Durbanville hjá vínhúsinu Durbanville Hills. Vínhúsið er ákaflega nútímalegt, bæði útlitslega og tæknilega séð ásamt því að svæðið er með þeim svölustu veðurfarslega í Suður Afríku enda Atlandshafið skammt undan. Þar eru því kjöraðstæður til víngerðar og vín Durbanville Hills er ávallt fersk og fáguð sem tengjist frekar bestu víngerð Evrópu enn öðrum heimsálfum.  Þar ræður ríkjum einn reynslumesti og virtasti víngerðarmaður‘‘ S-Afríku í dag Martin Moore. Pinotage-þrúgan sést ekki utan Suður-Afríka enda er þetta þrúga sem var „búin til“ þar fyrir rétt tæpri öld, sem blendingur af tveimur frönskum þrúgum, Búrgundarþrúgunni Pinot Noir og hinni suður-frönsku Cinsault. Segja má að hún hafi síðan verið eins konar flaggskipsþrúga suður-afrískrar víngerðar enda eru þetta mjög athyglisverð vín sem skáka hágæða Pinot Noir vínum á góðum degi. Það vill yfirvíngerðarmaðurinn Martin Moore allavega meina  Vínið hefur fengið að þroskast eftir gerjunarferlið á frönsku eikartunnum í 14 mánuði. Þetta er kröftugt dökkt vín, svartur, kryddaður, heitur ávöxtur, trönuber, kirsuber, sætkennd plóma og sveskja ásamt miklum reyk, leður, nýbökuð jólakaka, kanilstangir og eikartónum. Fínlegra í munni en maður á von á. Passar vel með braðgmiklum og jafnvel töluvert krydduðum réttum og þroskuðum hörðum ostum.

Þrúgur

Pinotage
Suður-Afríka
Suður-Afríka
2020
Durbanville Hills

RZ Specification Groups

Árgangur

2020

Magn

75cl

Styrkur

14%

Bragð

Kröftugt

Sætleiki

Þurrt

Framleiðandi