RZ Specification Groups
Magn
75cl
Styrkur
12%
Bragð
Létt
Sætleiki
Millisætt
Land
Hérað/Svæði
Framleiðandi
Vefsíða
Hentar vel með
Vörulýsing
Barefoot-vínin eru kalifornísk og hafa löngum vakið athygli fyrir mjög gott samspil verðs og gæða. Þetta er ágætt dæmi um það. Ekki kannski flókið vín og karaktermikið en engu að síður ágætlega vel gert.
Ljósgullið að lit með ferskan og léttan ávaxtaangan, ferskjur, melónur, gul og græn epli, frísklegt og hálfþurrt í munni með léttri meðalfylingu, mild ávaxtasæta og við bætist smá keimur af niðursoðnum perum. Eitt vinsælasta hvítvínið á Íslandi í dag.
Fékk nú nýlega gullverðlaun í Concours Mondial de Bruxelles 2016. Fæst einnig í 18,7cl smáflösku og 1,5 lítra og 3 lítra búkollu.