Finndu vín eða framleiðanda
Hafðu samband
Verðlisti
Sweden's best awarded Prosecco
Castelmondo Prosecco kemur frá Veneto í norðuhluta Ítalíu eða kannski ætti maður frekar að segja frá svæðinu Prosecco? Sagan er svolítið flókin. Til skamms tíma var Prosecco nefnilega heitið á þrúgu sem freyðivínin Prosecco voru síðan kennd við. Margir rugluðu þessu hins vegar saman og töldu Prosecco vera hérað, svona rétt eins og Champagne í Frakklandi. Og nú fyrir skömmu var þessu snúið við. Ákveðið svæði var skilgreint sem framleiðslusvæðið Prosecco og ákveðið að taka upp hið forna rómverska heiti þrúgunnar “ Glera” á nýjan leik. Með þessu er m.a. verið að vernda vöruheitið Prosecco en með þessu er tryggt að þótt þrúgan sé notuð annars staðar í heiminum þá má ekki kalla vínin Prosecco nema þau komi frá Prosecco. ( texti frá www.vinotek.is )
Strágult að lit með grænum glefsum, ferskur ilmur og bragð af lime, peru, grænum eplum, ferskju, hunangsmelónu, ylliberjum og hvítum blómum, í munni þurrt og ferskt.
Fiski, skelfiski, austurlenskum mat, smáréttum og sem fordrykkur.
2.149kr.