Finndu vín eða framleiðanda
Hafðu samband
Verðlisti
Nýtt útlit, sama góða vínið
Vínhúsið Montecillo í Rioja á Spánin hefur verið í miklum metum hjá íslenskum neytendum allt frá því að þau komu fyrst á markað hér fyrir tæpum tveimur áratugum.
Djúp kirsuberjarautt að lit og rústrauður útí barma. Djúpur dökkur ávöxtur, þroskuð kirsuber, rifsber, brómber og plóma njóta sín í bland við vanillu, kaffi og tóbakstóna frá eikinni ásamt vott af lakkrís og myntu. Langt í munni, mineralískt, djúpur ávöxturinn og kryddað með þéttum og ferskum tannínum. Vínið er látið þroskast í eikartunnum í 24 mánuði og minnst 16 mánuði í flösku áður en sett er á markað.
Nauti, lambi, léttari villibráð, grillmat, pottréttum, austurlenskum réttum og ostum.
2.799kr.