Finndu vín eða framleiðanda
Hafðu samband
Verðlisti
Mombasa Club Strawberry Edition Gin er eimað í samræmi við hefðbundna aðferðir. Gerjað úrvals kornbyggið er eimað 4 sinnum með svokallaðri pott eimingu, ekki ósvipað og koníak og viskí þegar best lætur. Það sem notað er til að gefa Mombasa Club séreinkenni er Angelica rót, Cassia börkur, einiber, kóríander fræ, kúmen, negull og svo auðvitað jarðaber. Þessi sérvalda blanda krydda og jurta er látin liggja í ca.12 klukkustundir í þá þegar tvíeimuðum kornspíranum áður enn þriðja loka eiming á sér stað í 500 lítra svokölluðum Tom Thumb pott eimingartækjum.
Ginið er því kristal tært og skínandi, ilmar af suðrænum ilmjurtum sem vafin eru jarðaberjum. Í munni gjöfult, sætleiksvott má greina á tungu, elíxír í mjög fínu jafnvægi þar sem jurtir, jarðaber, rauður ávöxtur takast skemmtilega á sem endar í löngu eftirbragði. Gin sem er fullkominn fordrykkur, í blöndur eins og með sódavatni eða tonik og kokkteila.
Ginið dregur nafns sitt og er tilfundið af samnefndum einkaklúbbi breta í borginni Mombasa við strönd Kenya í dag. Klúbburinn var stofnaður árið 1885 og var mikilvægt afdrep bresk ættaðra sem áttu þarna viðskipti á vegum breskra fyrirtækja á nýlendutímum eins og til dæmis Hið Konunglega Austur Afríku Verslunarfélag sem var allt í öllu á þessu svokölluðu Breska Austur Afríska Verndarsvæði á þessum tímum. Mombasa London Dry Gin heldur því áfram sem minning þessa tíma, landkönnuða, ævintýra og rómantík á stórkostlegum útrásatíma breska heimveldisins á 19. öld
7.999kr.