Finndu vín eða framleiðanda
Hafðu samband
Verðlisti
Mombasa Club Gin London Dry er eimað í samræmi við hefðbundna aðferðir. Gerjað úrvals kornbyggið er eimað 4 sinnum með svokallaðri pott eimingu, ekki ósvipað og koníak og viskí þegar best lætur. Það sem notað er til að gefa Mombasa Club séreinkenni er Angelica rót, Cassia börkur, einiber, kóríander fræ, kúmen og negull. Þessi sérvalda blanda krydda og jurta er látin liggja í ca.12 klukkustundir í þá þegar tvíeimuðum kornspíranum áður enn þriðja loka eiming á sér stað í 500 lítra svokölluðum Tom Thumb pott eimingartækjum.
Ginið er því kristal tært og skínandi, ilmar af suðrænum ilmjurtum sem vafin eru kryddtónum og einiberja angan. Í munni gjöfult, örlítill sætleiksvott má greina á tungu, elíxír í mjög fínu jafnvægi þar sem jurtir, anís, sítrus og þétt krydd takast skemmtilega á sem endar í löngu bitru eftirbragði. Gin með öll einkenni London Dry stílsins, fullkominn fordrykkur, í blöndur og kokkteila.
Ginið dregur nafns sitt og er tilfundið af samnefndum einkaklúbbi breta í borginni Mombasa við strönd Kenya í dag. Klúbburinn var stofnaður árið 1885 og var mikilvægt afdrep bresk ættaðra sem áttu þarna viðskipti á vegum breskra fyrirtækja á nýlendutímum eins og til dæmis Hið Konunglega Austur Afríku Verslunarfélag sem var allt í öllu á þessu svokölluðu Breska Austur Afríska Verndarsvæði á þessum tímum. Mombasa London Dry Gin heldur því áfram sem minning þessa tíma, landkönnuða, ævintýra og rómantík á stórkostlegum útrásatíma breska heimveldisins á 19. öld
8.799kr.