Finndu vín eða framleiðanda
Hafðu samband
Verðlisti
Suður Afríka flokkast yfirleitt í daglegu tali til Nýja heimsins þegar víngerð er annars vegar. Það má hinsvegar færa sterk rök fyrir því að að eðli víngerðar í Suður Afríku eigi meira sameiginlegt með gamla heiminum í Evrópu en ,,nýju´´ svæðunum í Síle, Ástralíu og víðar. Það er vegna þeirrar órofnu vínræktarhefðar sem þar hefur verið í nær fjórar aldir aftur í tímann ásamt því hvernig vínframleiðslan hefur þróast á höfðasvæðinu á suðurodda Afríku.
Eitt allra besta dæmið um þetta er að finna skammt norð-vestan við Höfðaborg í hlíðum Durbanville hjá vínhúsinu Durbanville Hills. Vínhúsið er ákaflega nútímalegt, bæði útlitslega og tæknilega séð ásamt því að svæðið er með þeim svölustu veðurfarslega í Suður –Afríku enda Atlandshafið skammt undan. Þar eru því kjöraðstæður til víngerðar og vín Durbanville Hills er ávallt fersk og fáguð sem tengjist frekar bestu víngerð Evrópu enn öðrum heimsálfum. Þar ræður ríkjum einn reynslumesti og virtasti víngerðarmaður‘‘ S-Afríku í dag Martin Moore
Eitt af betri Sauvignon Blanc vínum Suður – Afríku. Vín fullt af surðænum ávexti, garðaber, með sítrus og steinefna tónum. Þétt og bragðmikið í munni og passar vel með flestu sjávarfangi og grilluð ljósu kjöti, hörpuskel, smokkfiski og skötusel svo eitthvað sér nefnt.
Skelfiski, fiski, svínakjöti, alifuglum, grænmetisréttum.
2.999kr.