Finndu vín eða framleiðanda
Hafðu samband
Verðlisti
Vínsamlagið Chablisienne er stærsti framleiðandi Chablis-vína. Samlagið var sett á laggirnar árið 1923 og í dag eiga um 300 vínræktendur aðild að því. Ræður samlagið yfir um 25% af heildarræktarsvæði Chablis og framleiðir allt frá Petit Chablis og upp í Grand Cru. Hin fræga vínkeppni “ International Wine Challenge” útnefndi Vincent Bartement aðalvíngerðarmaður La Chablisienne besta hvítvínsgerðarmann ársins 2014 í heiminum. Hreinn og tær gylltur litur, svoldið feimið í fyrstu í angan en við öndum opnar það sig svo um munar, kryddaðir tónar i fyrstu ásamt þroskuðum ávexti, perur, ananas og sítrus, þægileg ristuð eik og rjómakennd vanilla. Í munni er það öflugt af ávexti og steinefnum i löngu eftirbragði.
Fiski, skelfiski, alifuglum, svínakjöti, léttari villibráð.
7.298kr.